25.1.2018 | 23:01
Skákdagurinn 26. janúar
Skákdagurinn er árlega, á afmćlisdegi Friđriks Ólafssonar, fyrsta Íslenska stórmeistarans, 26. janúar. Skákfélagiđ ţjófstartađi og hóf atskákmót sitt 24. og voru telfdar 3 fyrstu umferđirnar af 5, en mótinu lýkur svo međ 2 síđustu umferđunum ţann 31. janúar. Ţátttakendur eru 5 og ţví situr einn hjá, í hverri umferđ og stađan í mótinu nokkuđ óljós af ţeim sökum. Á skákdaginn er upplagt ađ taka fram tafliđ (tölvuna, símann) og fara ađ ćfa. Ćfingar hjá Skákfélagi Sauđárkróks eru öllum opnar og hefjast kl. 20 á miđvikudögum, í Safnađarheimilinu.
19.12.2017 | 22:55
Hrađskák og jólafrí
6 mćttu í hrađskákina síđasta miđvikudag, ţeir sömu og telfdu í Skáţinginu. Telfdar voru 15 umferđir og ţví mćttust menn ţrisvar. Hörđur varđ hlutskarpastur á góđum endaspretti međ 11 vinninga og 67 stig. Pálmi varđ annar, einnig međ 11 vinninga, en 1 stigi minna. Jón varđ ţriđji međ 10 vinninga, Guđmundur fjórđi međ 7, Einar náđi 4 og Baldvin 2
Nú er komiđ jólafrí hjá Skákfélaginu og verđur nćsta ćfing vćntanlega 3. janúar 2018
7.12.2017 | 13:08
Skákţingi Skagafjarđar lokiđ
Pálmi Sighvatsson sigrađi á Skákţingi Skagafjarđar, sem lauk í gćrkvöldi. Hann hlaut 5 vinninga af 5 mögulegum og hafđi tryggt sér sigur fyrir síđustu umferđ. Jón Arnljótsson varđ í öđru sćti međ 3 og 1/2 vinning, Hörđur Ingimarsson í ţriđja, međ 2 og 1/2 og 3,75 stig, en Baldvin Kristjánsson varđ fjórđi, einnig međ 2 og 1/2 vinning, en 2,75 stig. Guđmundur Gunnarsson varđ fimmti og Einar Örn Hreinsson sjötti.
Nćsta miđvikudagskvöld, 13. des., er fyrirhugađ hrađskákmót, ţar sem umhugsunartíminn er 5 mín. Umferđafjöldi rćđst af fjölda ţátttakenda, en stefnt á 10 - 14 umferđir.
30.11.2017 | 12:45
Pálmi Skagafjarđarmeistari í skák
Pálmi Sighvatsson hefur 1 og 1/2 vinnings forskot og ţar međ tryggt sér sigur á Skákţingi Skagafjarđar, eftir sigur gegn Herđi Ingimarssyni, í fjórđu umferđ, í gćrkvöldi. Pálmi er međ 4 vinninga, en nćstur er Jón Arnljótsson međ 2 og 1/2, en hann vann Baldvin Kristjánsson. Baldvin og Hörđur eru í 3.-4. sćti međ 2 vinninga og í 5. sćti er Guđmundur Gunnarsson međ 1 og 1/2. Í fjórđu umferđinni vann Guđmundur Einar Örn Hreinsson. Í 5. og síđustu umferđ teflir Einar viđ Pálma, Hörđur viđ Baldvin og Jón viđ Guđmund og berjast ţessir 4 síđast töldu um silfur og bronsverđlaun mótsins.
23.11.2017 | 12:52
Pálmi međ vinningsforystu
Pálmi Sighvatsson vann Baldvin Kristjánsson í uppgjöri efstu manna, í ţriđju umferđ Skákţings Skagafjarđar og hefur 3 vinninga, en Baldvin og Hörđur Ingimarsson, sem gerđi jafntefli viđ Guđmund Gunnarsson, koma nćstir međ 2 vinninga. Jón Arnljótsson vann Einar Örn Hreinsson og er fjórđi međ 1 og 1/2 vinning. Í fjórđu og nćstsíđustu umferđ tefla Pálmi og Hörđur, Baldvin og Jón og Guđmundur og Einar og stýra ţeir fyrrtöldu hvítu mönnunum.
16.11.2017 | 12:02
Baldvin og Pálmi efstir
Baldvin Kristjánsson og Pálmi Sighvatsson eru efstir, eftir 2 umferđir í Skákţingi Skagafjarđar, međ 2 vinninga. Baldvin vann Einar Örn Hreinsson og Pálmi Guđmund Gunnarsson. Hörđur Ingimarsson er ţriđji, međ 1 og 1/2, eftir jafntefli viđ Jón Arnljótsson, sem er fjórđi međ 1/2, en ađrir hafa minna. Í nćstu umferđ tefla Pálmi og Baldvin, Hörđur og Guđmundur og Einar og Jón.
9.11.2017 | 12:00
Pálmi, Hörđur og Baldvin unnu
Fyrsta umferđ í Skákţingi Skagafjarđar var háđ í gćrkvöldi. Keppendur eru 6 og urđu úrslit ţau ađ Pálmi Sighvatsson vann Jón Arnljótsson, Hörđur Ingimarsson vann Einar Örn Hreinsson og Baldvin Kristjánsson vann Guđmund Gunnarsson. Skákirnar unnust á hvítt, nema sú síđasttalda. Önnur umferđ verđur nćsta miđvikudag 15. nóv. og ţá hefur Baldvin hvítt gegn Einari, Jón gegn Herđi og Guđmundur gegn Pálma.
30.10.2017 | 22:00
Skákţing Skagafjarđar 2017
Skákţing Skagafjarđar 2017 hefst miđvikudaginn 8. nóv. kl. 20.00 í Safnađarheimilinu. Telfdar verđa 5 umferđir eftir Monradkerfi og verđa tímamörkin 90 mín. á skákina + 30 sek. viđbótartími á hvern leik. Skákmeistari Skagafjarđar 2016 varđ Jón Arnljótsson.
23.10.2017 | 20:58
Skákfélag Sauđárkróks í 3.-5. sćti í ţriđju deild
Fyrri hluti Íslandsmóts Skákfélaga var haldiđ, í Rimaskóla í Grafarvogi, um helgina. Sveit Skákfélags Sauđárkróks, sem vann sig upp úr 4. deild á síđasta vetri, er í 3.-5. sćti í 3. deild, međ 13,5 vinninga, af 24 mögulegum og 5 stig, af 8. Hćgt er ađ sjá stöđuna hér Fyrir sveitina telfdu: Jón Arnljótsson 0,5/4 Birgir Örn Steingrímsson 2/3 Pálmi Sighvatsson 1,5/4 Unnar Ingvarsson 3,5/4 Árni Ţór Ţorsteinsson 1,5/4 Ţór Hjaltalín 2,5/4 og Davíđ Örn Ţorsteinsson 2/2
4.9.2017 | 13:50
Vetrarstarf hefst á miđvikudag
Fyrsta skákćfing haustsins verđur í Safnađarheimilinu, miđvikudagskvöldiđ, 6. sept.,kl.20.00