10.1.2019 | 17:46
Atskákmót
Atskákmót Skákfélags Sauðárkróks er fyrirhugað að hefjist 23. janúar. Mótið hefur verið haldið árlega, með 1 eða 2 undantekningum, síðan 2001 og hafa umferðir verið frá 5 og upp í 9, eftir fjölda þátttakenda. Umhugsunartíminn var 30 mín. á skák fyrstu árin, en verður nú 25 mín., eins og verið hefur síðustu ár. Gert er ráð fyrir að mótið taki 3 miðvikudagskvöld (23.1, 30.1 og 6.2) og 3 umferðir á kvöldi, en verði þátttakendur færri en 10 fækkar umferðum á kvöldi og/eða kvöldum sem mótið tekur. Verði keppendur fleiri verður gripið til pörunarkerfis, þar sem 9 er hámarksfjöldi umferða.
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:49 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.