Skákþing Skagafjarðar hefst á morgun

Fyrsta umferð Skákþings Skagafjarðar 2015 – Landsbankamótsins hefst á morgun, miðvikudag 11. febrúar kl. 20 og fer fram í safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju. Þegar þetta er skrifað hafa 12 skákmenn skráð sig til keppni og er enn tækifæri til að vera með, en skráningu lýkur 15 mínútum áður en taflmennskan hefst. Til mikils er að vinna, en sigurvegarinn hlýtur sæmdarheitið Skákmeistari Skagafjarðar 2015. Stefnir í harða keppni og er sérstaklega ánægjulegt að sjá svona marga frá Siglufirði og Fljótum. Þegar skráða keppendur má sjá á vefslóðinni: http://chess-results.com/Tnr161398.aspx?lan=1

Frekari upplýsingar má fá hjá Þór Hjaltalín s. 845 8510 eða senda fyrirspurn á netfangið thor@minjastofnun.is

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband