Fyrsta æfing haustsins

Fyrsta skákæfing haustsins verður á miðvikudagskvöldið kl. 20.00 í Safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju og eru allir velkomnir og hvattir til að kíkja við.  Af taflmennsku sumarsins er það helst að Ásbjörn Guðmundsson V-Húnvetningur og Skagfirðingarnir Pálmi Sighvatsson og Kristján Bjarni Halldórsson urðu í 3-5. sæti á Landsmóti UMFÍ á Sauðárkróki 14 júlí síðastliðinn.  Sigurvegari þar varð Páll Sigurðsson úr Garðabæ og 2. Hjörleifur Halldórsson að norðan, en keppendur voru 8.  Jón Arnljótsson telfdi á hraðskákmóti á Hauganesi 10. ágúst og hafnaði í 14. sæti af 34.


Bloggfærslur 10. september 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband