30.11.2017 | 12:45
Pálmi Skagafjarđarmeistari í skák
Pálmi Sighvatsson hefur 1 og 1/2 vinnings forskot og ţar međ tryggt sér sigur á Skákţingi Skagafjarđar, eftir sigur gegn Herđi Ingimarssyni, í fjórđu umferđ, í gćrkvöldi. Pálmi er međ 4 vinninga, en nćstur er Jón Arnljótsson međ 2 og 1/2, en hann vann Baldvin Kristjánsson. Baldvin og Hörđur eru í 3.-4. sćti međ 2 vinninga og í 5. sćti er Guđmundur Gunnarsson međ 1 og 1/2. Í fjórđu umferđinni vann Guđmundur Einar Örn Hreinsson. Í 5. og síđustu umferđ teflir Einar viđ Pálma, Hörđur viđ Baldvin og Jón viđ Guđmund og berjast ţessir 4 síđast töldu um silfur og bronsverđlaun mótsins.
23.11.2017 | 12:52
Pálmi međ vinningsforystu
Pálmi Sighvatsson vann Baldvin Kristjánsson í uppgjöri efstu manna, í ţriđju umferđ Skákţings Skagafjarđar og hefur 3 vinninga, en Baldvin og Hörđur Ingimarsson, sem gerđi jafntefli viđ Guđmund Gunnarsson, koma nćstir međ 2 vinninga. Jón Arnljótsson vann Einar Örn Hreinsson og er fjórđi međ 1 og 1/2 vinning. Í fjórđu og nćstsíđustu umferđ tefla Pálmi og Hörđur, Baldvin og Jón og Guđmundur og Einar og stýra ţeir fyrrtöldu hvítu mönnunum.
16.11.2017 | 12:02
Baldvin og Pálmi efstir
Baldvin Kristjánsson og Pálmi Sighvatsson eru efstir, eftir 2 umferđir í Skákţingi Skagafjarđar, međ 2 vinninga. Baldvin vann Einar Örn Hreinsson og Pálmi Guđmund Gunnarsson. Hörđur Ingimarsson er ţriđji, međ 1 og 1/2, eftir jafntefli viđ Jón Arnljótsson, sem er fjórđi međ 1/2, en ađrir hafa minna. Í nćstu umferđ tefla Pálmi og Baldvin, Hörđur og Guđmundur og Einar og Jón.
9.11.2017 | 12:00
Pálmi, Hörđur og Baldvin unnu
Fyrsta umferđ í Skákţingi Skagafjarđar var háđ í gćrkvöldi. Keppendur eru 6 og urđu úrslit ţau ađ Pálmi Sighvatsson vann Jón Arnljótsson, Hörđur Ingimarsson vann Einar Örn Hreinsson og Baldvin Kristjánsson vann Guđmund Gunnarsson. Skákirnar unnust á hvítt, nema sú síđasttalda. Önnur umferđ verđur nćsta miđvikudag 15. nóv. og ţá hefur Baldvin hvítt gegn Einari, Jón gegn Herđi og Guđmundur gegn Pálma.